Vöruupplýsingar
No Requests

No Requests

Comparison (0)

Rotþró 2600 L

Rotþró 2600 L Rotþró 2600 L
  • Rotþró 2600 L Rotþró 2600 L
  • Rotþró 2600 L Rotþró 2600 L
  • Rotþró 2600 L Rotþró 2600 L
PE

Optimal for temperature retention

Optimal for durability and strength

Outer DimensionsInner Dimensions
L241NA
W139NA
H139NA
Weight130 kg. Volume2.600 liters Intak/úttak mm110 /160 mm
Product nr.: 3002600
Priceincl. tax
$1,24

Product Description

Rotþrærnar frá Sæplasti eru einfaldur búnaður til forhreinsunar á skólpi. Þær eru tilvaldar til notkunar þar sem staðhættir leyfa ekki almenna skólpveitu til sjávar. Rotþrónum er ætlað að beisla, upp að vissu marki, þau mengunarefni sem eru í fráveituvatni. Óuppleyst efni skiljast frá vatninu, þau þyngri falla til botns en fita, sápur og önnur léttari efni fljóta upp að vatnsyfirborði. Lífræn efni, sem eftir verða í rotþrónni, fara að rotna fyrir tilstilli gerla og rúmtak fastra efna minnkar. Hreinsa þarf botnfall úr rotþróm reglulega.

Þriggja hólfa rotþrær
Sæplast rotþrærnar eru þriggja hólfa og steyptar úr polyethelyneefni (PE). Þær eru léttar, meðfærilegar og auðvelt að setja þær niður. Inntak og úttak rotþrónna er 110 mm og 160 mm. Öll tenging lagna er auðveld og örugg. Útloftunar- og tæmingarrör skal setja á öll hólf rotþróarinnar og skal að minnsta kosti eitt þeirra vera opið. Sæplast framleiðir einnig stærri rotþrær með manngengum opum sem auðvelda eftirlit og tæmingu. Ganga skal frá lokum á öllum opum þannig að börn geti ekki opnað þau. Þegar rotþrær eru lestaðar eða affermdar af flutningatæki skal nota lyftaragafla eða hífa þær í stroffum. Gæta skal þess að þrærnar séu festar við flutningatæki með tryggilegum hætti og að þær fái ekki á sig þung högg við meðhöndlun.

More details

Stærðir og niðursetning
Hér á vefsíðunni eru staðlaðar stærðir rotþróa sem Sæplast framleiðir en aðrar stærðir er hægt að fá sérsmíðaðar eftir þörfum.
Rotþrærnar frá Sæplasti eru hannaðar samkvæmt leiðbeiningum frá Umhverfisstofnun. Staðlaðar gerðir rotþróa eru CE-merktar og standast kröfur staðalsinns  IST EN 12566-1:2000/A1:2003.  Leiðbeiningar um niðursetningu og frágang rotþróa er að finna í skjölum hér til hægri á síðunni. Athygli er vakin á ábyrgð kaupanda að leiðbeiningum um niðursetningu og viðhald sé fylgt.  Mikilvægt er að kaupendur rotþróa leiti til fagmanna og vandi til niðursetningar á þróunum sjálfum, sem og siturlögnum til að tryggja rétta virkni þrónna. 

Less details