Flokkun á Fiskidaginn mikla og undirritanir vegna styrktarsamninga

Miðvikudaginn 4. júlí undirrituðu fulltrúar fjögurra aðila samvinnusamning sem snýr að flokkun á rusli sem til fellur á Fiskideginum mikla. Undirritunin fór fram í brekkunni við hátíðarsviðið í miðbæ Dalvíkur.

Undanfarið hafa stjórnendur Fiskidagsins mikla unnið að því að skipuleggja flokkun á rusli sem fellur til á fjölskylduhátíðinni Fiskidagurinn mikli. Í ár verður skrefið tekið lengra með samvinnu fjögurra aðila, Samáls samtaka álframleiðenda, Sæplasts, Gámaþjónustu norðurlands og Fiskidagsins mikla. Stefnt er að því að flokka álpappír, plast og almennt sorp í sérmerkt kör frá Sæplasti, ásamt því að dósir og plastflöskur verða flokkaðar í sérstök ílát sem Sæplast gaf Björgunarsveitinni á Dalvík á síðasta ári og rennur ágóðinn af þeirri söfnun óskiptur til sveitarinnar.  Næstu árin er stefnt að enn meiri flokkun sorps og fá fleiri þátttakendur að borðinu.

Sæplast setur upp litakerfi og merkingar á Sæplastkör sem verða víða á hátíðarsvæðinu og vonumst við til þess að gestir kynni sér merkingar og leggi verkefninu lið. Gámaþjónusta norðurlands sér að venju um að taka það sem flokkað er og koma á rétta staði.

Samál sem eru nýir í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla leggja verkefninu lið og til gamans má geta að Fiskidagurinn mikli hefur notað um 2,6 tonn af álpappír í þessi 17 ár.

Allt frá upphafi hefur Fiskidagurinn mikli  lagt mikla áherslu á að umgengni sé góð. Oft hefur verið rætt um að þar sem að allt er frítt á Fiskideginum mikla sé aðgöngumiðinn að gestir gangi vel um og sýni almennt góða hegðun. Við mælumst til að gestir leggi verkefninu lið með því að nota eins mikið og hægt er sömu diska, súpuglös og fleira.

Á myndinni eru Elías Björnsson frá Sæplasti, Pétur Blöndal frá Samáli, Helgi Pálsson frá Gámaþjónustu Norðurlands og Júlíus Júlíusson frá Fiskideginum mikla.

Einnig notuðu fulltrúar Samáls, Appelsín og Sæplast og Fiskidagsins mikla tækifærið og skrifuðu undir styrktarsamning þessara aðila fyrir Fiskidaginn mikla 2018. Þessir þrír aðilar eru allir í góðum hópi aðalstyrktaraðila. Sæplast hefur verið mikill og góðu bakhjarl allt frá upphafi og ávallt í hópi aðalstyrktaraðila. Samál og Appelsín eru nýir í hópnum og bjóðum við þá sérstaklega velkomna. Allir drykkir á hátíðinni í ár verða í boði Appelsín.

Nánari upplýsingar veitir Júlíus Júlíusson framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla. 8979748

  Fiskidagurinn mikliFiskidagurinn mikli  Fiskidagurinn mikli