Vöruupplýsingar
Engin tilboðsbeiðni

Engin tilboðsbeiðni

Samanburður (0)

Sæplast 1000 einangrað ker

Sæplast 1000 einangrað ker Sæplast 1000 einangrað ker
  • Sæplast 1000 einangrað ker Sæplast 1000 einangrað ker
  • Sæplast 1000 einangrað ker Sæplast 1000 einangrað ker
  • Sæplast 1000 einangrað ker Sæplast 1000 einangrað ker
PE

Fyrir hámarks varmaeinangrun

Fyrir hámarks styrk

Ytri málInnanmál
L147 cm135-139 cm
B118 cm106-110 cm
H89 cm71-72 cm
DrainholeOptional
Þyngd100 kg. Rúmmál1020 lítrar
Vörunúmer.: 051000
Verðmeð VSK
1 kr.

Litir í boði

Athugið: Litaval og magn getur haft áhrif á verð

F00 Beige NCS: S1510-Y10R RGB: 228, 218, 184
F01 IBE Beige NCS: S3010-Y10R RGB: 190, 178, 149
F10 White NCS: S1002-B50G RGB: 227, 237, 234
F19 Light Grey NCS: S1502-Y50R RGB: 223, 221, 213
F20 Yellow NCS: S1060-G90Y RGB: 233, 206, 74
F25 Light Yellow NCS: S1040-G90Y RGB: 236, 221, 125
F30 Red NCS: S1080-R RGB: 179, 58, 65
F36 IBE Red NCS: S2060-Y80R RGB: 192, 98, 81
F35 Orange NCS: S1080-Y70R RGB: 213, 91, 53
F40 Green NCS: S2050-G RGB: 96, 178, 130
F42 Sea Green NCS: S2030-B50G RGB: 132, 192, 188
F43 Dark Green NCS: S5030-B90G RGB: 69, 118, 101
F50 Sea Blue NCS: S3050-B RGB: 48, 134, 171
F53 Purple NCS: S2020-R60B RGB: 180, 186, 212
F56 Blue NCS: S1550-R80B RGB: 113, 168, 225
F59 Dark Blue NCS: S2060-R80B RGB: 75, 136, 207
F60 Gray NCS: S3502-B RGB: 163, 172, 172
F61 Dark Gray NCS: S6005-B20G RGB: 106, 118, 119
F70 Light Brown NCS: S5020-Y60R RGB: 146, 112, 92
F71 Brown NCS: S4050-Y90R RGB: 131, 68, 63
F99 Black NCS: S8005-R80B RGB: 65, 73, 78

Vörulýsing

Sæplast 1000 einangrað ker er löngu orðið klassískt í vörulínu okkar og enn þann dag í dag á meðal okkar vinsælustu vara. Það hentar sérstaklega vel við meðhöndlun á ferskum fiski.  Það hentar einstaklega vel í sjávarútvegi, bæði um borð í fiskiskipum en einnig við landvinnslu sem öflugt og gott ísker og fiskiker. Kerið er þrefalt með kjarna úr polyethylene og því einsktaklega sterkt og endingargott. Sæplast 1000 einangrað ker hentar sérstaklega sem ker fyrir matvælaframleiðslu og ker fyrir endurvinnslu. Þá er kerið oft notað í saltfiskvinnslu og til flutninga sem saltker og ísker. Á kerinu öflugir hankar sem tryggja örugga hífingu og auk þess er það aðgengilegt á skammhlið fyrir brettatjakk eða lyftara.

Sæplast 1000 Einangrað Ker                                                                                                                            Spurðu okkur

  • Sterkt og endingargott

  • Fjölnota - lok mögulegt

  • Auðvelt að þrífa og halda hreinu

  • Lita- og merkingarmöguleikar  

                                                                                                                                                        

Um Sæplast einangruð ker: 

Einangruðu kerin frá Sæplast hafa frá upphafi haft gott orð á sér fyrir endingu, einangrun og styrk. Rannsóknir hafa verið gerðar varðandi PUR varmaeinangrun kerjanna og ljóst er að Sæplast kerin tryggja lengri varmaeinangrun og þar með gæði matvæla. Einnig hafa rannsóknir verið gerðar á styrk PE einangrun kerjanna sem sýna að kerin geta enst í mjög langan tíma sé farið vel með þau. Margar týpur af Sæplast plastkerum eru staflanleg og aðgengi er fyrir gólf og gaffallyftara frá öllum hliðum auk þess er hægt að hífa sum kerin með hífi. 

Litavalmöguleikar, merkingar og rekjanleiki eru í boði fyrir Sæplast einangruð ker. Sjá frekari upplýsingar neðar á síðunni eða hafðu samband við okkur.  
  

PE insulated core

Styrkur sem mætir hörðustu kröfum - PE einangrun

Sæplast PE einangruð ker eru hönnuð með styrkleika og endingu í huga en veggir kersins og einangrunin er gerð úr polyethylene.
Sæplast PE plastker eru því með þreföldum veggjum og þar með þau sterkustu á markaðnum í dag. Þau eru hönnuð á þann hátt að draga ekki í sig raka og vera einstaklega endingargóð. Þessir eiginleikar viðhalda gæði vörunnar og draga úr kostnaði kaupanda en einnig er auðvelt að gera við ker sem hljóta einhverjar skemmdir.   

Sæplast einangruð ker eru notuð um allan heim í ýmsan matvælaiðnað til að endast og að halda utan um rétt hitastig vörunnar hvort sem um er að ræða frosin eða ísuð/kæld matvæli og eru kerin hönnuð á þann hátt að hrinda auðveldlega óhreinindum frá sér og gera þrif á þeim auðveld. Kerin hafa líka verið notuð sem söfnunarker fyrir ýmsan úrgang eða öðru því tengt hvort sem er í matvælaiðnaði eða endurvinnslu. Kerin koma í ýmsum stærðum og gerðum og eru sölumenn Sæplast alltaf tilbúnir til þess að aðstoða við val og hjálpa til við að finna lausnir fyrir viðskiptavini. 

 

Sæplast PE einangruð ker eru þekkt fyrir styrkleika og endingu. Sæplast einangruð ker eru örugg og endingargóð fyrir matvælaiðnaðinn og hefur Sæplast frá upphafi tekist að viðhalda orðspori sínu sem framleiðandi gæðavara sem veitir framúrskarandi þjónustu. 

• Sterk, endingargóð og hagnýt plastker, örugg í flutningum
• Sæplast PE einangruð ker endast allt að 6-10 sinnum lengur en hefðbundin einföld ker
• Slétt hönnun eykur hreinleika og hindrar viðloðun óhreininda
• Hönnun kerjanna býður uppá auðveld þrif og takmarkar viðloðun óhreininda 

 

Sjá fleiri myndbönd af vörunum okkar 
                                                                                    
Meiri Upplýsingar

Sæplast einangruð plastker

Kostnaður á flutningi á vörunum okkar getur verið mismunandi eftir stærð, magni og áfangastað. 
Söluteymi Sæplast er reiðubúið að finna hagkvæmustu lausnina fyrir flutning hvert á land sem er. 

Sæplast býður uppá möguleika varðandi liti, merkingar og rekjanleg merki á kerum. 

Litavalmöguleikar   Merkingar/Logo   Rekjanleg merki

       
     Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar. 

Trackingengravingengraving

Minni Upplýsingar