02.06.2021
Þriðjudaginn 1.júní fékk Sæplast 9.bekk Dalvíkurskóla með sér í lið til að tína upp rusl austur á Sandi. Gengið var frá árósum Svarfaðardalsár vestur að Gámaröðinni við Sorphirðusvæðið og frá hafnarsvæðinu til austurs eftir fjörunni að sömu endastöð. Talsvert mikið af rusli var hreinsað á göngunni þetta árið. Göngufólk sem fer um Sandinn er að verða duglegra að grípa rusl sem það finnur á leiðinni og koma því í sorptunnur, en því miður virðist alltaf af nógu að taka.
Lesa meira
13.01.2021
Hráefni úr endurunnum kerum í fyrsta sinn notað í framleiðslu á nýjum
Lesa meira
10.11.2020
Sæplast hefur fært hjúkrunarheimilinu Dalbæ á Dalvík 2000 andlitsgrímur að gjöf. Grímurnar eru sérstaklega ætlaðar þeim sem heimsækja heimilisfólk á Dalbæ á meðan grímuskylda varir.
Lesa meira
02.11.2020
Í 11 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila.
Lesa meira
12.08.2020
Sjávarútvegsskóla unga fólksins er nú lokið þetta sumarið. Kennt var á fimm stöðum á Austurlandi, fjórum stöðum á Norðurlandi, í Reykjavík og í Vesturbyggð. Skólinn var rekinn í samstarfi sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja, vinnuskóla byggðarlaga og Sjávarútvegsmiðstöðvar Háskólans á Akureyri og kennsla fór fram í júní og júlí.
Lesa meira
04.03.2020
Framkvæmdaaðili sýningarinnar Verk og vit hefur að höfðu samráði við Embætti landlæknis og samstarfsaðila sýningarinnar ákveðið að fresta sýningunni sem halda átti í Laugardalshöll 12.-15 mars næstkomandi fram til 15.-18. október 2020.
Í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 setur framkvæmdaaðili sýningarinnar heilsu og hag sýnenda, þjónustuaðila og gesta sýningarinnar í forgang og er þessi ákvörðun tekin nú áður en uppsetning hefst á sýningunni. Verk og vit hefur skipað sér sess sem uppskeruhátíð bygginga- og mannvirkjageirans en á síðustu Verk og vit sýningu 2018 sóttu um 25.000 manns sýninguna.
Með hliðsjón af eðli sýningarinnar og þeim fjölda fólks sem sækir sýninguna heim, þá væri það erfiðleikum bundið að framfylgja að fullu leiðbeiningum almannavarna. Til að gæta ýtrasta öryggis sýnenda og gesta þá er sýningunni eins og áður er nefnt frestað fram í október 2020.
Lesa meira
11.07.2019
Í Rússlandi stendur yfir sýningin Seafood Expo Russia dagana 10.-12. júlí. Yfir 7000 gestir mæta á sýninguna og skoða þar vörur frá um 300 fyrirtækjum. Sæplast er með bás á svæðinu og kynnir þar helstu vörur.
Lesa meira
15.08.2018
Fiskidagurinn var haldinn í 18. sinn helgina 10.-12. ágúst og áætla má að um 36.000 gestir hafi heimsótt Dalvík í blíðskaparveðri þessa helgi.
Lesa meira
10.07.2018
Miðvikudaginn 4. júlí undirrituðu fulltrúar fjögurra aðila samvinnusamning sem snýr að flokkun á rusli sem til fellur á Fiskideginum mikla. Undirritunin fór fram í brekkunni við hátíðarsviðið í miðbæ Dalvíkur.
Lesa meira