Sæplast styrkir börn sem eru að hefja skólagöngu í fyrsta sinn

Kátir krakkar tilbúnir fyrir veturinn í Dalvíkurskóla
Kátir krakkar tilbúnir fyrir veturinn í Dalvíkurskóla

Nýjar töskur fyrir nýja nemendur

Undanfarin ár hefur Sæplast gefið börnum sem eru að taka sín fyrstu skref í 1. bekk í Dalvíkurskóla skólatöskur og pennaveski.

Mikilvægt er að þessari hefð sé haldið áfram. Hugmyndin er að allir taki þessi mikilvægu skref inn í skólann jafnir, allir geti fengið það sem þarf fyrir skólagönguna og að létta aðeins undir foreldrum þar sem þessi kostnaður getur verið nokkuð mikill.

Venjan er að börnin geri sér ferð í Sæplast til að þiggja gjöfina, því fylgir alltaf mikill spenningur og gleði og þar var engin breyting þetta árið, allir hressir og kátir.

Sæplast þakkar öllum fyrir komuna og óskar öllum nýnemum góðs gengis á sínu fyrsta ári í Dalvíkurskóla.