Vöruupplýsingar
Engin tilboðsbeiðni

Engin tilboðsbeiðni

Samanburður (0)

Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur)

Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur) Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur)
  • Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur) Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur)
  • Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur) Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur)
  • Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur) Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur)
  • Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur) Sæplast 65 einangrað kælibox (Hrollur)
PUR

Fyrir hámarks varmaeinangrun

Fyrir hámarks styrk

Ytri málInnanmál
L75 cm66-68 cm
B40 cm30-32 cm
H41 cm30 cm
DrainholeIncluded
Þyngd11 kg. Rúmmál65 lítrar
Vörunúmer.: 000065
Verðmeð VSK
25.204 kr.

Litir í boði

Athugið: Litaval og magn getur haft áhrif á verð

F19 Light Grey NCS: S1502-Y50R RGB: 223, 221, 213
F56 Blue NCS: S1550-R80B RGB: 113, 168, 225

Vörulýsing

Sæplast 65 einangrað kælibox er lítið, fjölhæft og meðfærilegt. Það er einstaklega endingargott. Það hentar sérstaklega vel í minni báta þar sem pláss er af skornum skammti og mjög vinsælt á meðal tómstundaveiðimanna. Sæplast 65 einangrað kælibox er tvöfalt með kjarna úr polyurethane og því með mikið einangrunargildi. Að auki er boxið með áföstu loki. Það er hægt að nota kæliboxið sem kæliker, fiskiker, ker fyrir kjöt og annan matvælaiðnað. Kæliboxið er einnig vinsælt heima, í ferðalögum og við ýmsa vinnu enda mjög fjölhæft og sterkt ker. Þetta sérstaka kælibox ber nafnið Hrollur og er vinsælt meðal kerja hjá Sæplast. 

Sæplast 65 Einangrað Kælibox                                                                                                                             Spurðu okkur

  • Hátt einangrunargildi

  • Endingargott

  • Fjölnota með loki og handföngum

  • Auðvelt að þrífa og halda hreinu  

 

KæliboxKæliboxKælibox

                                                                                                                                                        

Um Sæplast einangruð ker: 

Einangruðu kerin frá Sæplast hafa frá upphafi haft gott orð á sér fyrir endingu, einangrun og styrk. Rannsóknir hafa verið gerðar varðandi PUR varmaeinangrun kerjanna og ljóst er að Sæplast kerin tryggja lengri varmaeinangrun og þar með gæði matvæla. Einnig hafa rannsóknir verið gerðar á styrk PE einangrun kerjanna sem sýna að kerin geta enst í mjög langan tíma sé farið vel með þau. Margar týpur af Sæplast plastkerum eru staflanleg og aðgengi er fyrir gólf og gaffallyftara frá öllum hliðum auk þess er hægt að hífa sum kerin með hífi. 

Hafðu samband við okkur ef þú þarft frekari upplýsingar. 
 

PUR insulated core

Einangrunargildi - varmastjórnun

Sæplast PUR einangruð ker eru slétt, hverfissteypt tvöföld ker en PUR stendur fyrir polyurethane einangrun sem er dælt inn í veggi kersins til að tryggja gott einangrunargildi þeirra sem skilar sér í að vara helst köld/frosin lengur en með hefðbundnum einföldum plast eða frauðkössum. Í yfir 30 ár hefur Sæplast þróað einstaka tækni til að auka árangur kerjanna hvað varðar styrk og endingu bæði í veggjum þeirra sem og einangrun.  

Sæplast einangruð ker eru notuð um allan heim í ýmsan matvælaiðnað til að halda utan um rétt hitastig vörunnar hvort sem um er að ræða frosin eða ísuð/kæld matvæli og eru kerin hönnuð á þann hátt að hrinda auðveldlega óhreinindum frá sér og gera þrif á þeim auðveld. Kerin hafa líka verið notuð sem söfnunarker fyrir ýmsan úrgang eða öðru því tengt hvort sem er í matvælaiðnaði eða endurvinnslu. Kerin koma í ýmsum stærðum og gerðum og eru sölumenn Sæplast alltaf tilbúnir til þess að aðstoða við val og hjálpa til við að finna lausnir fyrir viðskiptavini. 

 

Sæplast einangruð ker eru örugg og endingargóð fyrir matvælaiðnaðinn og hefur Sæplast frá upphafi
tekist að viðhalda orðspori sínu sem framleiðandi gæðavara sem veitir framúrskarandi þjónustu.
 

• Góð varmaeinangrun tryggir stöðugt hitastig vörunnar
• Lok eru í boði en þau halda enn betur að vörunni og hitastigi hennar
• Hönnun kerjanna býður uppá auðveld þrif og takmarkar viðloðun óhreininda 
• Sæplast einangruð ker hafa orð á sér að vera einstaklega sterk og endingargóð 

Fleiri myndbönd af vörunum okkar  
                                                                                    
Meiri Upplýsingar

 

Sendingarmöguleikar fara eftir magni og staðsetningu kaupanda.

Merking og litamöguleikar eru takmarkaðir fyrir þessa vöru. 

Staðlaður litur fyrir Sæplast 65 einangrað kælibox er grár með bláu loki. 

Litur einangrað kæliboxLitur einangrað kælibox

 

 

 

 

 

 

  Hafðu samband við okkur fyrir ítarlegri upplýsingar

 

Minni Upplýsingar