Addi Klem lætur af störfum hjá Sæplasti

Elías Björnsson verksmiðjustjóri, Addi Klem og Borgar Jónasson verkstjóri
Elías Björnsson verksmiðjustjóri, Addi Klem og Borgar Jónasson verkstjóri

Þann 31. maí sl. var síðasti vinnudagurinn hjá Arnari Klemenssyni hjá Sæplasti. Arnar eða Addi Klem eins og hann er kallaður af vinnufélögunum er á 67 aldursári og kaus að láta af störfum af því tilefni eftir 15 ára starf og gefa sér betri tíma til njóta lífsins. Addi er búin að vera öflugur starfskraftur fyrir Sæplast öll þessi ár. Hann er afar jákvæður maður, sífellt með bros á vör og vel liðinn af samstarfsmönnum sínum og er mikil eftirsjá fyrir Sæplast af þessum einstaka manni.

Adda var færð kveðjugjöf frá Sæplasti fyrir vel unnin störf á liðnum árum og óskir um bjarta framtíð.