Ný heimasíða SÆPLAST

Það eru góðar líkur á að þú sért nú þegar búinn að átta þig á að SÆPLAST var rétt í þessu að opna nýja alþjóðlega heimasíðu sem gerir okkur kleift að ná til og þjóna betur viðskiptavinum fyrirtækisins hvar sem þeir eru í heiminum.  Undirbúningur nýju heimasíðunnar hefur staðið lengi yfir og allar deildir fyrirtækisins hafa tekið virkan þátt í þessu verkefni „Það tók drjúgan tíma að koma nýju síðunni í loftið enda vilJum við vanda okkur og gera þetta vel,“ segir Arnar Snorrason markaðs- og þróunarstjóri SÆPLASTS. „SÆPLAST er alþjóðlegt vörumerki og við viljum að nýja heimasíðan endurspeglaði það. Við ætlum okkur að halda áfram að þróa og bæta síðuna og væntum þess að við skiptavinir okkar verði jafn ánægðir með hana og við erum,“ segir Arnar Snorrason.