SÆPLAST á Icefish 2024

Árið 2024 er sannarlega sérstakt ár fyrir okkur hjá Sæplast, þar sem við fögnum 40 ára afmæli okkar samhliða 40 ára afmæli IceFish sýningarinnar.
Við höfum tekið þátt í sýningunni frá árinu 1984 og stutt íslenskan sjávarútveg síðan. Það er mikilvægt að vera hluti af þessari öflugu sýningu þar sem svo margir koma saman, fræðast og uppgötva nýjungar.
 
Sæplast og iTUB vinna saman að því að bjóða meðal annars upp á lausnir fyrir sjávarútveginn þar sem við sameinum gæði, endingu og umhverfisvænni lausnir. Við erum stolt af því að vera hluti af íslenskum sjávarútvegi og þökkum ykkur öllum fyrir stuðninginn og samstarfið í gegnum árin.
 
Sævaldur Jens Gunnarsson, einn af okkar sölumönnum, sem hefur verið hluti af Sæplast fjölskyldunni í 18 ár,  ræðir hér Icefish, ferðalag fyrirtækisins og mikilvægi þess að vera í sambandi við samstarfsaðila okkar og viðskiptavini. Við þökkum öllum sem kíktu á básinn okkar - Höldum vinnunni áfram og vöxum saman!