Ecofriendly
Sæplast is committed to protecting the environment
Fyrir hámarks varmaeinangrun
Fyrir hámarks styrk
Athugið: Litaval og magn getur haft áhrif á verð
SÆPLAST 600 er á meðal okkar vinsælustu kera. Það hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi, jafnt úti á sjó sem og í landi. Kerið er tvöfalt með pólýúretan kjarna og hátt einangrunargildi. SÆPLAST 400 kerinu má stafla með SÆPLAST 400 og 680. Þá eru á kerinu öflugir hankar sem tryggja örugga hífingu og auk þess er það aðgengilegt frá öllum hliðum fyrir brettatjakk eða lyftara. Stór kostur kersins er að það passar sérstaklega vel inn í algengustu flutningabíla í Evrópu. Þá uppfyllir kerið ISO 6780 staðalinn um helstu stærðir, þolgæði og meðhöndlun lyftara og brettatjakka. (Athugið að þetta ker staflast ekki með SÆPLAST 600 kerinu sem framleitt er á Íslandi.)